Færsluflokkur: Bloggar
7.10.2010 | 12:38
2509982909, KÓNGULÆR OG SNÁÐKAR
250998-2609
Fjölmargar dýrategundir á Íslandi hafa í sér eitur einkum dýr úr hópi skordýra og köngulóa sem nota oft eitur til að lama bráð sína. Víða í skordýraheiminum er að finna ýmis efnasambönd sem hafa lamandi eða eyðileggjandi áhrif á líkamsvefi þess sem er stunginn eða bitinn. Þar sem eitrið er yfirleitt mjög veikt og í afar litlu magni er það þó venjulega skaðlaust mönnum.
kÓNGULÆR OG GEITUNGAR
Meðal íslenskra skordýra sem bera í sér eitur má fyrst og fremst nefna geitunga. Í broddi þeirra er eitur sem veldur talsverðum sársauka þó að áhrif eitursins í einni stungu séu ekki mikil. Þegar stungurnar eru hins vegar orðnar nokkrir tugir getur magn eitursins orðið lífshættulegt fyrir fullorðinn einstakling. Hunangsflugur eru einnig með eiturbrodd og geta stungið þó að þær séu mun seinþreyttari til vandræða en geitungar. Vel þekkt og ákaflega útbreidd aðferð meðal köngulóa er að bíta væntanlega bráð sína og dæla inn eitri til að lama hana. Bit af völdum köngulóa hér á landi eru þó venjulega ekki alvarleg.
SNÁÐKAR
Það getur þó komið fyrir að snákar sem hefur verið smyglað inn til landsins sleppa úr haldi. Þessir snákar geta hæglega lifað af yfir sumartímann og þá jafnvel bitið þann sem þeir komast í tæri við. Þó smygl af þessu tagi virðist vera að færast í aukana eru enn í dag afar litlar líkur á að verða fyrir árás af þessu tagi. Með hlýnandi veðurfari aukast þó líkurnar á að snákar geti lifað hér af í framtíðinni. Ólöglegur innflutningur á dýrum getur því reynst afdrifaríkur fyrir íslenska náttúru ef þessi dýr sleppa úr haldi.
þetta blogg gerði
Arndís Ásbjörnsdóttir
upplýsingar:
Vísindavefurinn.is
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2010 | 12:15
hæ :-D
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar